Hótel Þórshamar er þægilega staðsett í hjarta Vestmannaeyjabæjar. Í öllum herbergjum er sjónvarp með 12 rásum ásamt myndbandstæki og útvarpi. Öll herbergi hafa síma, minibar og baðherbergi með sturtu. Í herbergjum eru fullkomin fimm stjörnu hótelrúm. Morgunverður er framreiddur á veitingastaðnum Fjólunni á fyrstu hæð hótelsins. Á hótelinu er þráðlaus nettenging. Fjöldi herbergja er 21.
Nýlega voru teknar í notkun þrjár svítur þar sem tilvalið er að gista ef maður vill láta fara sérstaklega vel um sig í þægilegu umhverfi. Starfsfólk hótelsins leggur sig fram um að gestum líði sem best og má benda á að hægt er að fá svíturnar skreyttar sérstaklega til dæmis við brúðkaup og önnur tilefni sem bjóða upp á smá dekur.
Veitingastaðurinn Fjólan
Alhliða veitingastaður á jarðhæð Hótels Þórshamars með
aðaláherslu á ferskasta sjávarfang hverju sinni.
Fjólan getur tekið á móti allt að 90 manna hópum.
Á Fjólunni er einnig borinn fram morgunverð fyrir gesti
hótelsins.
Aðrir gistimöguleikar í vestmannaeyjum:
Hótel Mamma
Gistiheimilið Sunnuhóll
Hamar Gistiheimili









