| Sjavaridjan
Rifi Ltd
Háarif 5 Tel. + 354 436 6803 |
Enska |
![]()
|
Sjávariðjan
Rifi HF, var stofnuð 1994. Fyrirtækið rekur fiskvinnslu að Hafnargötu 8
Rifi. Markmið fyirtækisins er að vinna afurðir úr fyrsta flokks hráefni, sem
uppfylla kröfur kaupendanna um ferskleika og gæði. Fiskvinnslan hefur þróast
ár frá ári og er orðin sérhæfð vinnsla á þorskbitum og aukaafurðum.
Afurðunum er ýmist pakkað ferskum í
frauðplastkassa og fluttar flugleiðis erlendis eða þær eru frystar, pakkaðar
og fluttar sjóleiðis á áfangastað. Afurðir sínar selur fyrirtækið m.a. til
Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, Belgíu og einnig lítilsháttar
innanlands. Söluaðilar eru m.a. Iceland seafood hf. og Tros ehf. Sandgerði. Sjávariðjan Rifi hf. er í eigu hjónanna Kristins Jóns Friðþjófssonar og Þorbjargar Alexandersdóttur og barna þeirra Erlu, Kristjönu, Bergþóru, Halldórs og Alexanders. Kristinn Jón Friðjþjófsson er framkvæmdastjóri fyrirtækisins og Guðrún Gísladóttir er verkstjóri. |
· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·
Copyright © randburg.is - All rights reserved.