Randburg.com -> Iceland -> Tourism -> Outdoor living
Sæferðir ehf.
Smiðjustígur 3
340 Stykkishólmur

Sími 438 1450
Fax 438 1050

E-mail
Germany
German


English
English
Walbeobachtung in Island

Local home page


Sæferðir

Sæferðir hefur yfir 20 ára reynslu í siglingum á Breiðafirði. Fyrirtækið er staðsett í Stykkishólmi, aðeins 2 klst. Fjarlægð frá Reykjavík. Sæferðir bjóða upp á margskonar spennandi afþreyingu fyrir ferðamenn og hópa, m.a.:
  • Ferjan Baldur og Flatey
  • Suðureyjasigling
  • Sjóstangveiði
  • Sérferðir fyrir hópa og einstaklinga


  • Ferjan Baldur & Flatey

    Ferjan Baldur siglir yfir Breiðafjörð frá Stykkishólmi til Brjánslækjar og hefur viðkomu í hinni heillandi og sögufrægu eyju, Flatey. Margir ferðalangar kjósa að taka ferjuna frá Stykkishólmi að morgni til, stoppa í Flatey, og halda svo til baka eða áfram yfir á Brjánslæk seinnipartinn. Þeir sem sigla yfir flóann með bíl geta sent hann á undansér á meðan stoppað er í Flatey, að kostnaðarlausu. Áætlun og verð má finna á vefsíðu okkar www.saeferdir.is

    Suðureyjasigling

    Bátsferð um magnað landslag Suðureyja Breiðafjarðar þar sem við skoðum meðal annars fjölbreytilegar bergmyndanir, sögulegar slóðir og sterkustu sjávarfallastrauma við Ísland. Á sumrin iðar svæðið af fuglalífi og má m.a. sjá toppskarfa, lunda, ritu, fýl, æðarkollu og ef heppnin er með okkur, konung íslenskra fugla, haförninn. Hápunktur ferðarinnar er þegar veidd eru ýmis skeldýr af botni sjávars og gestum gefst tækifæri á að smakka girnilegan hörpudisk og ígulkerjahrogn. Ferskara gerist það ekki!

    Lengd ferðar: 2 klst & 15 mín.
    Áætlun 2009:
    15. - 31. maí 11:00
    1. júní - 31.ágúst 11:00 & 14:30
    1. - 15.sept. 11:00
    Verð: 4.950 kr. fyrir fullorðna, börn 16-20 ára fá 50% afslátt, börn 0-15 ára: Frítt

    Sjóstöng

    Í þessari skemmtilegur ferð er siglt er um eyjarnar óteljandi á litlum 13 manna hraðbát. Skipstjórarnir okkar þekkja svæðið einstaklega vel og vita hvar best er að renna fyrir þeim gula. Njóttu frábærrar náttúru Breiðafjarðarins á nýjan og spennandi hátt!

    Lengd ferðar: 2 tímar
    Áætlun 2009:
    15.-31. maí 11:15)
    1. júní - 31. ágúst 11:15
    1. - 15. sept. 11:15
    Verð:
    Fullorðnir: 6.600 kr.
    Stöng*: 1.550 kr.
    Börn 12-15 ára: 3.300 kr.
    Börn 0-11 ára: Frítt

    *Fjölskyldur eða ættingjar geta deilt einni stöng

    Sérferðir fyrir hópa & einstaklinga

    Sæferðir bjóða upp á fjölbreyttar sérferðir fyrir hópa og einstaklinga. Sem dæmi má nefna frábærar veisluferðir þar sem siglt er um eyjar Breiðafjarðar, plógur settur út og gestum gefið tækifæri á að smakka ferskan skelfisk. Þriggja rétta kvöldverður er svo framreiddur í undurfögru umhverfi. Annar möguleiki fyrir litla hópa eða einstaklinga er að sigla um fjörðinn á 13 mann hraðbát þar sem náttúran er skoðuð í nánd, komið er við í Flatey, og ef kostur gefst, endað á afskektu skeri, þar sem upp kemur á fjöru heit laug í þanginu.... einstök ferð!

    Hvalaskoðun með Sæferðum, Stykkishólmi

    Breiðafjarðaferjan Baldur

    Sjávarréttahlaðborð

    Hvalaskoðun


    · Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
    · Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
    · Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

    · Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·

    Copyright © randburg.com - All rights reserved.

    Randburg Is Your Path to The Future of Information