| Reykjaneshöfn Vikurbraut 11 IS-230 Keflavik Iceland Sími. 421 4575 Fax 421 2666 Tölvupóstur |
German French |
|
|
Keflavíkurhöfn Keflavík er með eldri höfnum samlagsins en samt hin fullkomnasta. Nýlega endurbyggð með grjótvarnargarði og auðveld innsigling með gott dýpi. Ný flotbryggja fyrir léttabáta skemmtiferðaskipa og skemmtiferðabátaútgerð (hvalaskoðun). Hreinlegt athafnasvæði með góðri tengingu við þjónustu bæjarins einsog verslanir, hótel og veitingastaði. Hafnarvigtin, saltsala Hafnarbakka hf., vöruhús Skipaafgreiðslu Suðurnesja eru við höfnina. Keflavíkurhöfn er jafnframt tollhöfn. Mörg skip nota Keflavíkurhöfn til farþega- og áhafnaskipta en aðeins 6 km eru á Keflavíkurflugvöll og því fáir kostir betri á landinu. Viðlegukantur fyrir skip allt að 165m með djúpristu að 7 til 13m ásamt fjölda annarra viðlegukanta fyrir smærri skip. Njarðvíkurhöfn Góð gámasvæði eru við Njarðvíkurhöfn, sem nýtast jafnt far- og fiskiskipum. Innsiglingin er greiðfær með 5,6 m dýpi, sem stendur til að dýpka síðar. Viðlegukantur fyrir skip allt að 130 m löng með djúpristu að 7,5 til 9 m ásamt fjölda annarra viðlegukanta við Norður- og Suðurgarð. Helguvíkurhöfn Við Helgarvíkurhöfn hefur verið skapaður grunnur að fríiðnaðarsvæði, þar sem Helguvík bíður upp á kjör tengingar á sjó, landi og í lofti með Keflavíkurflugvöll í aðeins 4 km fjarlægð. Helguvík er einnig olíuhöfn Suðurnesja með Nato olíubryggju og birgðastöð. Fiskimjölsverksmiðja SR-Mjöls h.f. og flokkunarstöð Helguvíkurmjöls h.f. eru í NV enda Helguvíkur. Auðveld innsigling með mikið dýpi. Viðlegukanturinn í Helguvík er 150m og er dýpið 10m fyrir skip allt að 200m. Hafnir Smábátahöfnin í Gróf -
Smábátahafnir |
![]()
|
· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·
Copyright © randburg.is - All rights reserved.