Heilsustofnun NLFI
Grænumörk 10
810 Hveragerði
Ísland
Sími:  483 0300
Fax:   483 0320

Senda tölvupóst
Heimasíða NLFI

Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði

In English


Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði
Dvöl í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði er ákjósanleg fyrir þá sem þurfa að bæta heilsufar sitt.  Í friðsælu umhverfi fjarri amstri hversdagslífsins er gott að styrkja líkama og sál. Starfsfólk Heilsustofnunar NLFÍ leggur sig fram um að dvölin verði bæði ánægjuleg og árangursrík.

Breyttur lífsstíll
Dvalargestir koma í Heilsustofnun eftir veikindi og aðgerðir og til að ráða bót á lífsstíls- og heilsufarsvandamálum. Oft er um að ræða samtvinnaða áhættuþætti, sem leitt geta til sjúkdóma. Með breyttum lífsháttum er oft hægt að bæta heilsuna svo um munar. Það auðveldar alla starfsemi, að umhverfi Heilsustofnunar er fallegt og friðsælt og vel fallið til útivistar og náttúruskoðunar.

Hugmyndafræði
Kjarninn í hugmyndafræði stofnunarinnar er að efla heilbrigði, auka vellíðan og styrkja einstaklinginn í að bera ábyrgð á eigin heilsu og velferð.

Hlutverk

Hlutverk stofnunarinnar er tvíþætt. Hún er annars vegar almenn og sérhæfð endurhæfingarstofnun og hins vegar veitir hún hvíldar- og hressingardvöl. Áhersla er lögð á markvissa hreyfingu, hollt mataræði, slökun og hvíld. Fræðsla og fagleg ráðgjöf er stór þáttur í starfinu og er mest áhersla lögð á heilsuvernd og bætta lífshætti.

Hverjir koma í Heilsustofnun?

Allir sem þurfa að efla þrek og þol eiga erindi í Heilsustofnun.

Þeir sem helst leita endurhæfingar í Heilsustofnun er fólk með stoðkerfisvandamál t.d. eftir slys og sjúkdóma eins og vefjagigt og liðagigt. Einnig þeir sem haldnir eru síþreytu og streitu eða eru að jafna sig eftir erfið veikindi svo sem krabbamein og hjartasjúkdóma. Góður árangur næst hjá þeim sem glíma við aukakílóin.

Dvalarumsókn þarf í flestum tilfellum að koma frá lækni.

Námskeið gegn reykingum
Árangursrík vikunámskeið gegn reykingum eru haldin í Heilsustofnun. Tilvísun þarf ekki frá lækni.

Health and Rehabilitation Clinic - Iceland

Treatment, rehabilitation and relaxation, Hveraferdi

line

· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg ·

Copyright © randburg.is. All rights reserved.

Randburg Is Your Path to The Future of Information