-->

Hotels in Iceland
Randburg.com -> Iceland -> Tourism -> Horse Rental - Accommodation

Lysuhóll Hestaleiga og Sumarhús
- Reiðtúrar og sumarhús -

Lysuhóll
IS - 356 Sn
æfellsbær
Island

Sími 435 6716
Fax 435 6816

E-mail
Vefsíða

German
German

English
English


Bóndabærinn Lýsuhóll er staðsettur á sunnanverðu Snæfellsnesi, um 25 km frá Snæfellsjökli og 10 km frá Búðum.

Lýsuhóll er lítið fjölskyldufyrirtæki, hestaleiga og súmarhúsaleiga. Á sumrin bjóðum við upp á gistingu í huggulegum sumarbústöðum og þægilegri íbúð og einnig reiðtúra frá einni klukkustund upp í margra daga ferð. Á veturna stundum við þjálfun hrossa og fleira.

Komið og upplifið ótrúlega fallegt landslag - fjöllin, hraunin, litskrúðugar strendur og jökulinn. Einnig höfum við upp á að bjóða sundlaug með heitum potti með okkar fræga ölkelduvatni, sem er mjög heilsusamlegt. Í næsta nágrenni er 9 holu gólfvöllur (ca. 6 km) og einnig bjóðum við silungsveiði í bæjarlæknum frítt fyrir næturgesti.

Mörgum dreymir um að upplifa Ísland á hestbaki. Hjá okkur geta allir fundið hesta við hæfi, sama hvort þú ert byrjandi eða góður reiðmaður. Frá stuttum reiðtúr upp í 8 daga ferð erum við með ferðina sem hentar þér. Það er möguleiki á að ríða meðfram ströndinni eða yfir fjöllin og hraunin.

Til dæmis þriggja klukkustunda reiðtúr förum við meðfram ströndinni í gullnum sandi út að Búðum, þar sem selir liggja í klettunum og allt útsyni magnað.

Þið getið leigt þrjú lítil sumarhús sem samanstanda af svefnherbergi, setustofa, lítið eldhús, sturtu og klósett, tilvalið fyrir 2-4 manna fjölskyldu. Það eru tvö rúm í svefnherbergi og svefnsófi fyrir tvö í setustofu. Úr sumarhúsum er mjög fallegt útsýni og góð verönd tilvalin til að sitja úti eða grilla.

Gestum er boðið upp á fría
silungsveiði í bæjarlæknum.

line

· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·

Copyright © randburg.com. All rights reserved.

Randburg Is Your Path to The Future of Information