Randburg.com -> Iceland -> Tourism -> Outdoor living
JRJ-Jeppaferðir
Skógastíg 1
560 Varmahlíð

Sími 453 8219
Gsm 852 7896 og 851 1852

Sendu okkur tölvupóst
English
English


German
German

Spain
Spanish


Jeppaferðir um hálendi íslands
Ferðumst um hálendi Íslands og aðra skemmtilega staði með JRJ-Jeppaferðum.
Við getum sótt gesti okkar á höfuðborgarsvæðið ef óskað er.

Ferð JRJ-1 í júní-júlí-ágúst-sept
Tveggja daga helgarferðir, laugardaga til sunnudaga, upp á hálendi til að sjá jökla, hveri, aka yfir jökulsá, langar og stuttar gönguferðir, að jöklum og á fjöll. Baða sig í nátturulaugum. Sofa í fjallaskálum. Þú þarft aðeins að vera með svefnpoka og góða skapið. Við sjáum um fæði, og allt annað sem viðkemur ferðinni.

Ferð JRJ-2 í júlí-ágúst-sept
Brottfarir alla mánudaga til föstudaga. Gestir sóttir, ekið til Þingvalla, Geysis, Gullfoss, til Hveravalla á Kili, Skagafjarðar og gist á sveitahóteli í hjarta héraðsins. Haldið á vit hálendis ofan Vesturdals, innst í Skagafirði, til Laugarfellsskála, gróðurvinjar með nátturulaug og gist þar. Sprengisandur, Gæsavatnaleið, norðan Vatnajökuls til Öskju, Herðubreiðalindir og Mývatn til Skagafjarðar, þar sem við eyðum síðasta degi í Drangey og Merkigili.

Ferð JRJ-3 í maí-sept
Jöklaferð að sumri, eins dags ferð á Vatnajökul. Ferðin tekur 14 klst. Brottför 09.00 fh. ekið í 6 tíma um Suðurland til aðstöðu Jöklaferða á Vatnajökli. Á jöklinum er ferðast með Jöklaferðum á snjósleða, snjóbíl, veitingar á hóteli á jöklinum. Dvalið 2-3 tíma í paradís jökulsins. Allur matur er innifalinn.

Gullni hringurinn og Bláa lónið
Eins dags ferð allt árið um kring sem tekur 13 klst. Ekið er að Nesjavallavirkjun, þar sem virkjunin og blásturshola er skoðuð. Einnig er farið til Þingvalla, Geysis, Gullfoss, Kersins, Selfoss og endað í Bláa lóninu.

Ferð JRJ-5. Skemmtun í Skagafirði
Ferðin getur tekið allt frá tveimur dögum eða fleirum ef óskað er. Gist er á góðu sveitahóteli í mjög friðsælu umhverfi. Stutt í Varmahlíð og stutt að leggja í athyglisverðar gönguferðir. Sundlaug og heitir pottar. Í næsta nágrenni er möguleiki á að fara í hestaferðir, sjóstangaveiði, snjósleðaferðir, menningar og söguskoðun, siglingar í ám Skagafjarðar, o.m.fl.

Haustferðir á jeppum
Hausttungl í Skagafirði í september, október og nóvember. Í samvinnu við Hótel Varmahlíð bjóðum við hópum og fyrirtækjum tveggja og hálfs dags pakkaferðir.

Vetrarferðir á jeppum
Vetrartungl í Skagafirði í febrúar, mars og apríl. Spennandi tveggja og hálfs dags ferð fyrir þá sem vilja dvelja á góðu hóteli og stunda útivist, t.d. skíði og gönguferðir. Upplagt fyrir litla og stóra hópa, fyrirtæki og/eða félagasamtök. Gist er í fjallaskála.

Jeppaferðir um hálendi íslands

fjölskylduferðir

fyrirtækisferðir

ferðast um hálendið

hálendisferðir

· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·

Copyright © randburg.is - All rights reserved.

Randburg Is Your Path to The Future of Information