Húsið, Byggðasafn Árnesinga
820 Eyrarbakki
Ísland

Sími: 483 1504
Fax: 483 1082


Senda tölvupóst
Vefur Húsins

Húsið á Eyrarbakka - eitt elsta og merkasta hús landsins, byggt 1765.

English version


Húsið á Eyrarbakka - eitt elsta og merkasta hús landsins, byggt 1765. Munir sem tengjast sögu héraðsins og sögu Hússins á Eyrarbakka.

Í fórum safnsins er til talsvert af heimildum og öðrum gögnum sem tengjast sögu Hússins á Eyrarbakka. Meðal þess er íbúaskrá unnin úr prestþjónustubókum og stór mappa með margvíslegum heimildum um Húsið.

Opnunartími Húsins

Jafnframt hefur nokkuð borið á því undanfarin ár að afkomendur íbúa Hússins hafi komið til að vitja heimkynna forfeðra sinna, sent tölvupóst á netfang safnsins eða skrifað í gestabók heimasíðunnar.

Til að auðvelda þessu fólki og öðrum áhugasömum leitina að upplýsingum um íbúa Hússins á Eyrarbakka hefur þessi undirsíða "Grúsk" verið sett upp. Hér er að finna íbúaskrá Hússins, skrá yfir kaupmenn og faktora búsetta í Húsinu, Vesturfaraskrá og ítarefni um einstaka kaupmenn og afkomendur þeirra.

Anna Kr. Pétursdóttir tók saman upplýsingar um kaupmennina Petersen, Vesturfaraskránna og sá um ættfræðihlið þessarar síðu sem og vefhönnun í samráði við Vef.is.

Tekið skal fram að síða þessi er enn í smíðum. Enn á eftir að fullgera skrána yfir kaupmenn og faktora búsetta í Húsinu og annað efni tengt Húsinu.

Merkileg saga Húsins á Eyrabakka
Húsið á Eyrarbakka er í hópi elstu bygginga landsins. Það var flutt tilsniðið til landsins árið 1765 og er stokkbyggt timburhús, 659 rúmmetrar að stærð á tveimur hæðum með háalofti undir hanabjálka.

Assistentahúsið nefnist viðbyggingin vestan við Húsið en tengibygging er milli þeirra. Það var byggt árið 1881 og er 280 rúmmetrar að stærð. Assistentahúsið var upphaflega aðsetur verslunarþjóna Lefolii-verslunarinnar.

Lesa meira um Húsið

 

Arnesinga Folk Museum

Merkileg saga Húsins á Eyrabakka

Í fórum safnsins er til talsvert af heimildum og öðrum gögnum sem tengjast sögu Hússins


· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg · Sign Up! ·

Copyright © randburg.is - All rights reserved.

Randburg Is Your Path to The Future of Information