Hotels in Iceland
Randburg.com -> Iceland -> Tourism -> Hotels
Hótel Borgarnes
Egilsgötu 16
310 Borgarnes

Sími 437 1119
Fax 437 1443

E-mail

English
English


German
German


Spanish
Spanish

Hótel Borgarnes


Hótel Borgarnes er þægilegt þriggja stjörnu heilsárshótel í hjarta vesturlands, Borgarnesi. Þar er kappkostað að veita gestum góða og persónulega þjónustu.

Hótel Borgarnes er í 120 km. fjarlægð frá flugvellinum. Herbergin eru 75 talsins, öll búin helstu nútíma þægindum, svo sem sjónvarpi, sturtu og síma. Góður veitingasalur er innan veggja hótelsins. Góð ráðstefnu- og fundaaðstaða er á hótelinu fyrir minni og stærri hópa.

Rétt við hótelið er stór útisundlaug með heitum pottum. Einnig nokkrir merkir sögustaðir úr Egilssögu, einni þekktustu perlu miðaldabókmenntanna. Útivistar- og afþreyingarmöguleikar eru fjölbreyttir: fallegar göngu- og reiðleiðir, menningarminjar og merk söfn.

Borgarnes er fallegur bær með um 2000 íbúa. Þar er miðstöð verslunar og þjónustu í Borgarfirði. Í héraðinu eru m.a. tveir háskólar, Viðskiptaháskólinn á Bifröst og Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri. Ennfremur er evrópsk miðstöð rannsókna í miðaldarbókmenntum í Snorrastofu í Reykholti.
Frá Borgarnesi er stutt leið á Snæfellsnes, Deildartungu, Hraunfossa, Surtshelli og Langjökul auk þess sem bærinn er í þjóðbraut við þjóðveg númer 1 sem liggur hringinn í kringum Ísland.

Hotel in Iceland

Icelandic accommodation
line

· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·

Copyright © randburg.is. All rights reserved.

Randburg Is Your Path to The Future of Information