| Hótel Vík Síðumúla 19 IS - 108 Reykjavík Ísland Sími: 588 5588 Fax: 588 5582 tölvupóstur Local homepage |
|
Þriggja stjörnu hótel í Reykjavík Hótel Vík er lítið og notalegt þriggja stjörnu hótel í Reykjavík. Á hótelinu eru stór tveggja manna herbergi (27-27 m2) sem öll eru búin kæliskáp, síma, gervihnattasjónvarpi og sturtu. 11 Studio íbúðir eru á hótelinu með eldunaraðstöðu, örbylgjuofni og fl. Unnt er að setja eitt til tvö aukarúm inn í hvert herbergi. Morgunverðarsalur er á jarðhæð, ásamt setustofu og bar. Í næsta nágrenni við Hótel Vík er verslunarmiðstöðin Kringlan, og helsta útivistarsvæði borgarinnar, Laugardalurinn, er einnig skammt undan. Þar er íþrótta- og sýningarhöll, Laugardalslaugin, Fjölskyldugarðurinn, Grasagarður reykjavíkur og Húsdýragarðurinn. Einnig eru í grenndinni ýmis þjónustufyrirtæki, verslanir og veitingastaðir. Strætisvagnaferð í gamla miðbæinn tekur aðeins örfáar mínútur. Hótel Vík er kjörinn áningarstaður fyrir kaupsýslumenn og aðra þá sem eru á ferð um höfuðborgarsvæðið og kjósa sér friðsælan náttstað að hverfa til milli ferðalaga.
|
|
![]()
· Agriculture
· Commerce & Services ·
Culture & Arts ·
Education ·
Entertainment ·
· Fisheries ·
Health ·
Industries ·
News & Media ·
Public Authorities ·
· Recreation & Sports ·
Shopping ·
Shipping & Transport ·
Tourism ·
· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·
Copyright © randburg.com - All rights reserved.