|
Hótel Geysir er ferðaþjónustumiðstöð
glæsilegt heilsárshótel, staðsett við eina mestu náttúruperlu
landsins, Geysi. Gisting á staðnum býður upp á möguleika til að
upplifa hverasvæðið hvenær sem er dags í margvíslegri birtu og geta
gefið sér tíma til að skoða alla þá fjölbreytilegu hveri, hverahrúður
og litasamsetningar sem svæðið hefur upp á að bjóða. Hótel
Geysir er eitt glæsilegasta hótel á íslandi.
Einnig er boðið upp á margvíslega þjónustu fyrir þá sem vilja halda
fundi eða ráðstefnur í fögru umhverfi, fjarri skarkala borgarinnar.
TÍ nágrenni Geysis er margt hægt að gera. Þaðan er stutt inn á miðhálendið
um Kjalveg og Gullfoss er í 10 km. fjarlægð. Haukadalurinn býður
einnig upp á marga möguleika til þess að kynnast betur landinu og
náttúru þess. Í Haukadalsskógi er fjöldi fallegra gönguleiða.
Göngustígar eru merktir og þar má finna fóðleiksmola um trjátegundir
o.fl. Á veturna er þetta frábært gönguskíðaland! Áður en gengið
er inn í skóginn er skilti með upplýsingakorti um helstu leiðir.
Þann 3. júní árið 2000 var opnað stórbrotið margmiðlunarsafn
við Geysi í Haukadal, Geysisstofa. Í Geysisstofu gefst einstakt
tækifæri til að kynnast jarðfræði Íslands á áhugaverðan og raunverulegan
hátt. Áhersla er lögð á jarðfræðisögu landsins, jökla, eldgos,
jarðskjálfta og jarðhita. Geysi sjálfum eru gerð góð skil, sögu
hans og háttum. Jafnframt eru kynnt önnur lítt þekkt svið náttúru
landsins s.s.sérstæður gróður og hitaþolnar hveraörverur.
Safnið veitir einstaka innsýn í ægikraft íslenskrar náttúru,
þar sem jökulhlaup, samspil jökla og eldgosa leika stór hlutverk,
enda nánast óþekkt fyrirbrigði utan Íslands.
Í Geysisstofu er einnig að finna minjasafn sem gefur góða
innsýn í líf fólks fyrr á öldum, og merka sögusýningu um
sögu Haukadals frá landnámi til dagsins í dag. Er sérstök áhersla
lögð á Ara fróða, einn af upphafsmönnum íslenskrar sagnaritunar,
heimsóknir erlendra ferðmanna að Geysi fyrr á öldum og þjóðsögur
sem tengjast Haukadal.
Nánari upplýsingar
má finna á vefsetri Geysis
en þú getur líka prófað að senda okkur
fyrirspurn
um þá þjónustu sem við veitum
Þú
ert ávallt velkominn að Geysi!! |


 |