![]() ![]() ![]()
|
| Randburg.com -> Iceland -> Tourism -> Hotels |
| Hótel Skógar Skógar IS - 861 Hvolsvöllur Ísland |
|
|
Hótel Skógar Hótel Skógar er staðsett á Skógum undir Austur Eyjafjöllum í Rangárvallasýslu. Hótelið er með 12 herbergjum; 10 tveggja manna, einu þriggja manna og einu eins manns. Hótel Skógar leggur áherslu á persónulega þjónustu í notalegum húsakynnum. Á hótelinu er glæsilegur veitingastaður með arni og stórri skjólgóðri verönd. Þar er hægt að rúma allt að 35 manns innandyra og annað eins utandyra. Veitingastaðurinn er opinn frá kl..8:00 til 23:00. Lögð er áhersla á einfaldan matseðil með úrvals hráefni og veigum. Á Hótel Skógum eru öll herbergi með vönduðum innréttingum, baði, síma, sjónvarpi, baðslopp. Einnig er hægt að fá morgunverð á herbergin. Garðurinn umhverfis hótelið er hinn glæsilegasti og státar af heitum potti og sauna, og skartar útsýni uppá Eyjafjallajökul og Skógafoss. Frá 1.júní verður hótelið opið allan sólarhringinn alla daga vikunnar og er þá áhersla lögð á innlenda og erlenda ferðamenn sem kjósa gæði, þægindi og þjónustu. Frá 1. sept. til 15. maí verður eingöngu opið um helgar. Við skipuleggjum ferðir um næsta nágrenni fyrir gesti, en margt er í boði á þessu svæði til skemmtunar, svo sem byggðasafn, sleðaferðir á Mýrdalsjökli, göngu og hestaferðir. Hótel Skógar er metnaðarfullt fyrirtæki sem leggur áherslu á gæði, þægindi og þjónustu. Skoðaðu myndir frá Hótel Skógum |
|
![]()
· Agriculture
· Commerce & Services ·
Culture & Arts ·
Education ·
Entertainment ·
· Fisheries ·
Health ·
Industries ·
News & Media ·
Public Authorities ·
· Recreation & Sports ·
Shopping ·
Shipping & Transport ·
Tourism ·
· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·
Copyright © randburg.com - All rights reserved.