Randburg.com -> Iceland -> Tourism -> Accommodation

Hotel Gullfoss
Brattholt - Bláskógarbyggd
801 Selfoss
Iceland

Tel.: +354 486 8979
Fax.: +354 486 8691


E-mail
Local homepage

Farmhouse accommodation in south Iceland

 

Hotel Gullfoss - Location Map


4 stjörnu sveitahótel á suðurlandi
Í Brattholti hefur verið starfrækt bændagisting um árabil og þar er lögð áhersla á góða, persónulega þjónustu. Í maí 1999 var opnað nýtt 500 fm. sveitahótel á staðnum, þar verða 16 tveggja manna herbergi með baði ásamt 70 manna matsal.

Boðið er upp á gistingu í uppbúnum rúmum í eins og tveggja manna herbergjum ásamt morgunmat.

Einnig er boðið upp á íslenskan heimilismat og kaffimeðlæti.

Hótel Gullfoss - Áður Brattholt
Hótel Gullfoss, áður Brattholt, er í þægilegri fjarlægð frá Höfuðborgarsvæðinu, lítil hætta er á að vegir teppist, svo það hentar sérstaklega vel fyrir þá sem hafa stutta viðdvöl á landinu.

Í nágrenninu er að finna helstu náttúruperlur Suðurlands; Gullfoss, Geysi, Haukadalsskóg og Brúarhlöð og ef lengra er farið; Þingvelli, Skálholt, Laugarvatn, Þjórsárdal o. fl. þannig að dagsferðamöguleikar eru ótalmargir allt árið um kring.

Svæðið er ekki síður fallegt á veturna og hrífast margir af Gullfossi í klakaböndum, stjörnubjörtum
nóttum og norðurljósum.

Umhverfi Hótel Gullfoss - Dægradvöl
Í nágrenni Brattholts er fjöldi fallegra gönguleiða og má þar nefna leiðina meðfram Hvítárgljúfri, en þaðan er um 40 mínútna gangur að Gullfossi.

Fjölbreyttir afþreyingarmöguleikar eru í nágrenninu. Næsta sundlaug er á Geysi 7 km og næsti golfvöllur í Úthlíð 15 km. Næsta verslun er í Reykholti 25 km og lítill húsdýragarður er í Laugarási 35 km svo fátt eitt sé nefnt.

Hotel Gullfoss - Staðsetningarkort

Hotel Brattholt

Hotel Gullfoss - Location Map


· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg · Sign Up! ·

Copyright © randburg.com - All rights reserved.

Randburg Is Your Path to The Future of Information