|
|
||
|
Hótel Gullfoss Bláskógarbyggd 801 Selfoss Iceland Sími.: 486 8979 Fax.: 486 8691 GSM: 861 5581 Netfang Heimasíða |
|
|
|
Hótel í nágrenni við helstu
náttúruperlur Suðurlands Hótel Gullfoss er í þægilegri fjarlægð frá Höfuðborgarsvæðinu, lítil hætta er á að vegir teppist, svo það hentar sérstaklega vel fyrir þá sem hafa stutta viðdvöl á landinu. Í nágrenninu er að finna helstu náttúruperlur Suðurlands; Gullfoss, Geysi, Haukadalsskóg og Brúarhlöð og ef lengra ar haldið; Þingvelli, Skálholt, Laugarvatn, Þjórsárdal o. fl. þannig að dagsferðamöguleikar eru ótalmargir allt árið um kring. Svæðið er ekki síður fallegt á veturna og hrífast margir af Gullfossi í klakaböndum, stjörnubjörtum nóttum og norðurljósum. Brattholt Boðið er upp á gistingu í uppábúnum rúmum í eins og tveggja manna herbergjum ásamt morgunmat. Einnig er boðið upp á íslenskan heimilismat og kaffimeðlæti. >> BÓKA HÉR <<
Gullfoss Talið er líklegt að fossinn hafi hlotið nafn sitt vegna þess að gullinn kvöldroði á jökulvatninu hafi minnt menn á gull, eða þá vegna regnbogans sem oft sést í sólskini í vatnsúðanum frá fossinum. Flestir ferðamenn koma að Gullfossi á sumrin en að margra dómi er hann ekki síður glæsilegur í klakaböndum en í sumarskrúða. |
![]()
|
· Home · Search · About Randburg · Sign Up! ·
Copyright © randburg.is - All rights reserved.