|
Hestaþing ferðaþjónusta Böðvarsholt 356 Snæfellsbær Sími 435 6699 og 865 8818 Fax 435 6699 |
German English Danish |
|
Hestaþing var stofnað árið 1995 af Ágústi H. Rúnarssyni. Aðalstarfssemi Hestaþings er í Þýskalandi en rekur einnig fjölbreytilega ferðaþjónustu allan ársins hring í Böðvarsholti á Snæfellsnesi. Hestaþing selur ferðir til Íslands aðallega í gegnum Þýskaland og sér um skipulagningu á þeim. Í Böðvarsholti eru tvö gistihús; gamla húsið og nýja húsið þar sem aðstaðan glæsileg. Í nýja húsinu eru fjögur tveggja manna herbergi, eitt fimm manna herbergi og eitt níu manna herbergi, setustofa, borðsalur og úti fyrir er stór verönd með heitum potti. Gamla húsið er á tveimur hæðum og á efri hæðinni er svefnaðstaða fyrir 15 manns, auk þessa er tvö fjögurra manna herbergi á neðri hæðinni. Bæði húsin hafa fullkomana eldunar- og baðaðstöðu. Þetta er kjörið fyrir stóra og litla hópa. Ferðaþjónustan í Böðvarsholti bíður margvíslega ferðaþjónustu jafnt að sumri sem vetri; pakkaferðir, hestaferðir, dekurdaga, brúðkaup, hvataferðir, óvissuferðir, laxveiðiferðir, giftingarveislur, sakamálaferðir, snjósleða- og jöklaferðir, norðurljósaferðir svo fátt eitt sé nefnt. Hér eru örfá dæmi um það sem við höfum að bjóða þér og þínum samferðamönnum. Við viljum taka á móti þínum óskum og sjóða saman draumaferðina þína allt eftir þínum kröfum og þörfum. Leyfðu okkur að aðstoða þig. Pakkaferðir sumar og vetur: Gisting að Böðvarsholti með fullu fæði. Farið er í gönguferðir í Lóndranga, Þúfubjarg (sem er eitt fallegasta fuglabjarg á íslandi), um Arnarstapa og Hellna, Djúpalónssand og Dritvík ásamt mörgum fleiri áhugaverðum stöðum undir leiðsögn. Einnig er farið á hestbak, á snjósleða á Snæfellsjökul, í hvalaskoðun, sjóstangaveiði, silungsveiði, bátsferðir um Breiðafjarðareyjar, fuglaskoðun, og margt fleira. Dekurdagar: Leyfðu okkur að dekra við þig með góðum mat í faðmi magnaðrar náttúru á Snæfellsnesi. Við bjóðum þér í heilnudd, svæðanudd, pottanudd, o.fl. ![]() Hestaferðir: Á vegum Hestathing eru í boði fjölbreytilegar hestaferðir eins og t.d.: Ferð í Kolkuós, einnig Laufskálarétt, ferð um Snæfellsnes, riðið um Löngufjörur og Búðafjörur, grillað á ströndinni, farið yfir Kjöl, sérhannaðar fjölskylduferðir, Landsmótsferðir o.fl. Morðgáta: Tveggja nátta sakamálaferðir í Böðvarsholt þar sem ákveðin Agatha Christie stemmning ræður ríkjum. Það er framið morð í Böðvarsholti og næturgestir fá það hlutverk að finna hver sökudólgurinn er. Upplifðu spennandi ævintýri! Vetraferðir: Fjölbreytileikinn er hér hafður að leiðarljósi og í boði eru léttar gönguferðir í nágrenni Böðvarsholts, snjósleðar, jöklaferðir, hestaferðir, hellaferðir, ferðir að Gullfoss og Geysi, verslunarferð til höfuðborgarinnar, norðurljósaferð, ofl. |
![]() Brúðkaup: Höfum haldið rómantískar giftingarveislur, þar sem ástfangnir gifta sig í Búðakirkju, á Snæfellsjökli eða hvar sem því dettur í hug. Tilvonandi bruðarhjón mæta bara á staðinn og við sjáum um alla þætti þjónustunnar. Við höfum haldið stórveislur og minni veislur, þar sem sungið og dansað nóttina út og algengt er að veislugestir gisti nóttina. Þó nokkuð af fólki frá Þýskalandi hefur komið í þessum tilgangi. Áramótaferðir: Hefur þú upplifað áramótin á Íslandi?. Það er eitthvað ólýsnalegt við það að upplifa áramótin í höfuðborginni með tilheyrandi glæsikvöldverð og flugeldasýningu á miðnætti. Í þessum ferðum er einnig farið í Bláa Lónið, farið að Gullfoss og Geysi o.fl. Hellaferðir: Farið er í nokkra glæsilega hraunhella Íslands eins og Víðgemlir, Raufárhólshellir ofl. Íslandsferðir: Við höfum séð um Íslandsferðir fyrir viðskiptavini og starfsmenn ýmissa erlendra og innlenndra fyrirtækja. Nokkrir af okkar helstu viðskiptavinum eru t.d. T.D. Cargolux Airlines í Luxembourg, Texaco, auglýsingaljósmyndara, Meindl, ýmsir fastafulltrúar og sendiherrar hjá Evrópuráðinu í Strasbourg. Við höfum farið með ánægða ferðalaga í sérsaumaðar laxveiðiferðir, óvissuferðir, hvataferðir svo fátt eitt sé nefnt. (VIP service). ![]() Norðurljósavikur: Í boði eru ýmsar skoðunarferðir að vetri þar sem megináhersla er lögð á að skoða norðurljósin. Sala og útflutningur á hestum Í Böðvarholti fer fram ræktun á úrvals hestakyni og einnig er sala á hestum og útflutningur. Þú getur dvalið frítt hjá okkur í nokkra daga, við borgum helming af fargjaldi þínu, á meðan þú skoðar þá hesta sem þér lýst á til kaups. |
· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries
· News & Media · Public Authorities ·
·
Recreation &
Sports · Shopping ·
Shipping &
Transport · Tourism
·
· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·
Copyright © randburg.is. All rights reserved.