Afþreying í nágrenni Hellna:

Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull SnjósleðaferðirGönguleiðirBátsferðirGolfHestaleigaSelir LýsuhóllFuglaskoðunLengri ferðirHvalaskoðun

Í myndaalbúminu færðu betri sýn yfir svæðið.

ÞjóðgarðurinnSnæfellsjokull -Við erum í mestri nálægði við sunnanverðan inngang í þjóðgarðinn sem er í aðeins 8 km fjarlægð frá Brekkubæ. Þar er að finna stórbrotna náttúru, samspil sjávar og hrauns/lands, minjar um forna útgerðarstaði, mögnuð fuglabjörg, gamlar gönguleiðir og ótal eldstöðvar, auk þeirrar kyrrðar og friðar sem þjóðgarður býður upp á. Yfir honum trónir hinn mikilfenglegi Snæfellsjökull sveipaður dulmagni og orku sem svo margir sækja í.

Snjósleðaferðir - á Snæfellsjökul.Yfir sumartímann eru daglegar snjósleða- eða troðaraferðir á Snæfellsjökul, allt frá því snemma að morgni og fram að miðnæturferðinni sem er ólýsanleg upplifun að sumarlagi. Miðar fást á Brekkubæ og það tekur 20 mín að aka frá okkur að brottfararstað á Jökulhálsinum.

Gönguleiðir um Hellnar – Fjaran frá Hellnum að Arnarstapa er friðlýst og er náttúran þar stórbrotin og fuglalíf fjölbreytt. Á Gistiheimilinu Brekkubæ fá gestir gönguleiðakort með helstu leiðum og áfangastöðum, hvort sem þeir vilja fara í stutta eða langa gönguferð.

Bátsferð meðfram ströndinni – Hægt er að fara í skoðunarferð á báti frá Arnarstapa. Siglt er meðfram stórbrotinni strandlengjunni, inn í Pumpugjárnar við Arnarstapa, að Gatkletti og með ströndinni að Hellnum, inn í Baðstofuhelli og út að Hellnageltinum. Einnig er hægt að veiða á sjóstöng og nóg er af fiski á grunnslóð skammt undan landi.

Sönghellir – Jökulháls – Jökulhálsvegurinn er opinn öllum bílum á sumrin og liggur frá Hellnum/Arnarstapa yfir í Ólafsvík. Við rætur Stapafells er Sönghellir, sem Bárður Snæfellsás bjó í meðan hann byggði bæ sinn á Laugarbrekku á Hellnum og notaði síðan til ráðgerða með mönnum sínum. Hellirinn er hvelfing, þar er mikið bergmál og á veggjum hans er að finna áletranir allt aftur til þess tíma er Eggert Óvar hér á ferð 1753.

Golf – Níu holu golfvöllur er á Görðum í Staðarsveit (25 mín akstur frá Brekkubæ) og í Ólafsvík (30 mín akstur frá Brekkubæ).

Hestaleiga – Hestaleigur eru í Staðarsveit á Böðvarsholti (20 mín akstur frá Brekkubæ) og á Lýsuhóli (25 mín akstur frá Brekkubæ). Hægt er að fara í styttri og lengri reiðferðir, m.a. um sandfjörurnar austan Búðaósa.

Selir – Við Ytri-Tungu í Staðarsveit (30 mín akstur frá Brekkubæ) er yfirleitt hægt að sjá seli á klöppunum undan landi. Auðvelt aðgengi fyrir alla.

Lýsuhólslaug – Í Lýsuhólslaug er heitt ölkelduvatn (einstakt á Íslandi), ríkt af ýmsum steinefnum og hefur bað í lauginni heilandi áhrif á líkamann. Laugin er klórlaus.

Fuglaskoðun– Í klettunum við Hellnafjöru er mikið fuglavarp og auðvelt er að fylgjast með fýl, ritu, stuttnefju og langvíu. Stórkostlegt fuglabjarg er einnig við Svalþúfu og á Öndverðarnesi. Eitt stærsta kríuvarp í heimi er að finna milli Hellissands og Rifs, auk þess sem verulegt kríuvarp er á Arnarstapa og á Hellnanesi. Á vötnum og tjörnum í Staðarsveit og við Rifsós verpa ótal tegundir vaðfugla, sumar mjög sjaldgæfar.

Lengri ferðir– Ef þú vilt hafa bækistöð þína á Brekkubæ er hringakstur um Snæfellsnes skemmtileg hálfs- eða heilsdags ferð. Hægt er að koma við í Grundarfirði, í Bjarnarhöfn og heilsa upp á Hildibrand og skoða hákarlasafnið hans, ganga á Helgafell (88 m) sem er rétt sunnan við Stykkishólm og fara í skoðunarferð um Breiðafjörð með Sæferðum.

Hvalaskoðun- Út af Snæfellsnesi eru einhver bestu skilyrði í heimi til að skoða hvali, bæði steypireið og búrhval, einhver stærstu dýr jarðar, auk minni hvala eins og háhyrnings og hnísu. Hvalaskoðunarbátur fer daglega frá Ólafsvík (30 mín akstur frá Brekkubæ) í 5-7 tíma siglingu. Miðar í ferðirnar fást á Brekkubæ. Að auki eru háhyrningar oft skammt frá landi beint út af Hellnahöfn og sjást því vel frá Gistiheimilinu.


Service car


Birds


Take a walk


on the glacier


The harbour

Home - Guiding Light Tours - Places of interest at Hellnar
Guesthouse Brekkubaer -
- Our photo album - Workshop and other services

· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·

Copyright © randburg.is - All rights reserved.

Randburg Is Your Path to The Future of Information