Randburg.is -> Island -> Á ferð -> Gisting

Gljúfurbústaðir
Gljúfur
801 Selfoss
Ísland

Sími: +354 483 4461 / 896 4761
Fax.: +354 483 4661


Netfang
Vefsíða

English
English

Gljúfurbústaðir leigja út sumarhús í hæsta gæðaflokki


Leiga á sumarhúsum í hæsta gæðaflokki
Gljúfurbústaðir leigja út sumarhús í hæsta gæðaflokki, þar sem góður aðbúnaður gesta er í fyrirrúmi. Í bústöðunum eru rúm fyrir 6-8 manns, þar af 2-3 hjónarúm með heilum dýnum, sængur og koddar, sturtuklefi, heitur pottur, sjónvarp, myndbandstæki, geislaspilari, útvarp, gasgrill, garðhúsgögn á afgirtri verönd, kæliskápur með frystihólfi, eldavél, allur borðbúnaður, svo og mjög vönduð húsgögn.

Sumarbústaðir í fallegu umhvefi
Bústaðirnir standa hátt við fjallsrætur með miklu útsýni yfir Ölfusið til Stokkseyrar, Eyrarbakka, Þorlákshafnar og út á sjó. Fjarlægð milli bústaða er góð, þannig að hver bústaður hefur talsvert rými.

Gljúfurbústaðir eru á friðsælum stað utan alfaraleiða, en samt örstutt í umferð og þéttbýli. Að þjóðvegi 1 eru um 2 km, til Hveragerðis um 7 km, á Selfoss um 10 km og til Reykjavíkur um 45 km.

Gönguleiðir
Skemmtilegar gönguleiðir eru í næsta nágrenni Gljúfurbústaða og tiltölulega stutt í merktar gönguleiðir á Hengilssvæðinu. Þá er stutt í ýmsa afþreyingu s.s. sundlaugar, golfvelli, veiði og hestaleigur.

Leigutími fer eftir óskum leigjenda, algengast er helgar- eða vikuleiga. Gestir þurfa að koma með rúmfatnað og handklæði, allt annað er í bústöðunum.

Gert er ráð fyrir, að leigjendur þrífi húsin að dvöl lokinni. Hægt er að fá uppábúin rúm, handklæði og þrif að dvöl lokinni, gegn aukagjaldi.

ATHUGIÐ að heimilisdýr eru ekki leyfð í húsunum!

Sumarhús til leigu, staðsetning

Vacation houses, Gljufur


· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg · Sign Up! ·

Copyright © randburg.is - All rights reserved.

Randburg Is Your Path to The Future of Information