|
Heimagisting Maríu Höfðagata 11 340 Stykkishólmur Sími 438 1258 Fax 438 1103 GSM 862 9980 |
English |
|
|
Stykkishólmur er stærsti þéttbýlisstaðurinn á Snæfellsnesi og góður áningastaður fyrir ferðafólk hvort heldur leiðin liggur um Snæfellsnes eða yfir Breiðafjörð með Baldri. Hjá Maríu, Höfðagötu 11 á Stykkishólmi, býðst gisting á fallegu heimili. Á boðstólnum eru fjögur tveggja manna herbergi. Tvenn baðherbergi eru í húsinu og er annað með baðkari, sturtu og mjög góðri snyrtiaðstöðu. Mjög gott sjónvarpshol, vinaleg stofa og út úr henni er hægt að ganga út á verönd. Þaðan er stórkostlegt útsýni. Garðurinn umhverfis húsið er fallegur og gróðursæll. Gistingunni fylgir morgunverður og einnig kvölhressing. Umhverfi Stykkishólms er fallegt og þar eru mörg gömul og áhugaverð hús, eins og t.d. Norska húsið. Þjónusta fyrir ferðafólk er fjölbreytileg, verslanir, notaleg sundlaug og golfvöllur svo eitthvað sé nefnt. Þaðan er stutt að sækja áhugaverða staði á Snæfellsnesi. Verið velkomin að gista á vinalegu heimili í skemmtilegu umhverfi. |
![]() ![]()
|
· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·
Copyright © randburg.is - All rights reserved.