Elding - Hvalaskoðun

Sími 555 3565
Fax 554 7420

E-mail
Heimasíða

whale-watching in iceland


Germany

France

Iceland

English

Spanish

Denmark

Velkomin um borð í Eldingu!

Elding hvalaskoðun bíður uppá reglulegar hvalaskoðunarferðir frá Reykjavíkurhöfn frá byrjun apríl út október.

Bátarnir okkar:

Elding I - Elding er glæsilega innréttað 130 tonna skemmtisiglingaskip. Eldingin hentar vel til siglinga með 40 til 120 manna hópa, en getur þó tekið allt að 150 manns í styttri ferðir. Allir farþegar geta notið góðs útsýnis í nálægð hvala af þremur þilförum sem eru sérstaklega notaleg til útiveru, og geta fengið kuldagalla lánaða endurgjaldslaust. Í veitingasalnum eru bækur með fróðleik og myndir af því sem búast má við að sjáist í siglingunum. Um borð er hægt að kaupa heita og kalda drykki, samlokur og sælgæti, og í samráði við veitingastaði er hægt að panta sérstakan veislumatseðil fyrir hópa.

Elding II – Haustið 2001 keypti Elding hvalaskoðun ehf. nýjan bát, lúxus-snekkjuna Eldingu II frá Neskaupsstað, sem er 30 tonna hraðbátur með sérlega glæsilega lúxus-innréttingu. Elding II hentar mjög vel til hvala- og fuglaskoðunar fyrir minni hópa, 15 til 40 manns. Báturinn var smíðaður hjá Halmatic bátasmiðjunni í Englandi, sem er vel þekkt hér á landi fyrir smíði á hraðskreiðum björgunar- og aðstoðarbátum.


Tímatafla - Sjá nánar á www.elding.is

Apríl

Maí

Júní

Júlí

Ágúst

September

Okotber

09:00

09:00

09:00

09:00

09:00

09:00

-

13:00

13:00

13:00

13:00

13:00

13:00

13:00

-

-

17:00

17:00

17:00-

-

-

 

Internetbókanir

Hvalir. Þeir hvalir sem oftast sjást í ferðum okkar eru hrefnur, háhyrningar, hnúfubakar, höfrungar og hnísur og stundum lang-, sand- og steypireyðar. Á íslenskum hafsvæðum er mögulegt að rekast á yfir 20 tegundir hvala en þá erum við að tala um íslenska landgrunnið sem nær yfir kalda hafið norður af landinu og eins hlýrri sjó í hafinu suður af landinu. Eins spila hafstraumar mikið inn í lífríkið sem og framboð fæðu.

Fuglar. Við sjáum margskonar sjávarfugla í ferðunum okkar og má þar helst nefna súlu, lunda, langvíu, álku, skarf, máva, ritur, kríur og marga fleiri. Sjórinn í kringum Ísland er mikil matarkista á sumrin fyrir fugla sem og önnur dýr. Í Faxaflóa er þetta einstakt og koma því þangað mörg þúsund fuglar á hverju sumri til að éta og til að koma upp ungum sínum. Í ferðunum okkar er staldrað við í Lundey eða Akurey sem eru byggðar af þúsundum lunda og annarra sjófugla og sagt er frá helstu tegundum og einkennum þeirra meðan stoppað er við eyjurnar. Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla fuglaskoðara og aðra náttúruunnendur til að komast nálægt hinum viltu sjófuglum í kringum Ísland. 


Við ábyrgjumst gæði ferða okkar. Þó svo að slíkt gerist aðeins örsjaldan ábyrgjumst við að ef ekki sjást hvalir eða höfrungar í þinni ferð færð þú að fara aftur í hvalaskoðunarferð með Eldingu við fyrsta mögulega tækifæri sem þér hentar.

Sjóstangaveiði Nú bjóðum við uppá fastar sjóstangaferðir tvisvar í viku frá júní út ágúst.  Ferðirnar eru á þríðjudögum kl. 18:00 og laugardögum kl. 13:30.  Allur útbúnaður til veiðanna er um borð það eina sem þarf að koma með er góða skapið og eitthvað til að bera aflann heim í.

Fyrir hópa er farið á hvaða tíma sem er allan ársins hring ef greitt er fyrir lámark 15 manns, farið er á Eldingu I eða Eldingu II eftir stærði hóps.


Hvalfjarðarferðir. Hvalfjörðurinn er vanmetin náttúruperla og engu likt að skoða hann af sjó á björtu sumarkvöldi. Við höfum ákveðið að bjóða uppá kvöldferðir fyrir hópa frá Reykjavík eða Hafnarfirði í sumar, þar sem farið væri í hvalaskoðun og síðan siglt inn Hvalfjörðinn. Leiðsögumaður lýsir því sem fyrir augu ber, bendir á sögufræga staði og segir sögur. Fuglalíf er áhugavert í firðinum og komum við t.d. upp að hinum sögufræga Geirshólma í Helguvík en þar er nokkuð mikið lundavarp.  

Síðan er farið í land í útivistarparadísinni í Hvammsvík. Þar er hægt að fara í kajakróður, veiða silung, spila golf og borða góðan mat. Þá væri siglt til baka í miðnætursólinni eða farið með rútu til Reykjavíkur. Einnig er sá möguleiki að hefja ferð í Hvammsvíkinni, eyða hluta dagsins þar og sigla síðan um Hvalfjörðin og enda ferðina í miðbæ Reykjavíkur eða Hafnarfjarðar.


Sérsniðnar ferðir
. Við bjóðum einnig  upp á sérsniðnar ferðir fyrir hópa, lengri hvalaskoðunarferðir, fuglaskoðun, sjóstöng, grillveislur, kvöldferðir og margt fleira. Við erum opin fyrir hverskonar hvataferðum og öðrum ævintýraferðum og leggjum okkur öll fram við að gera slíkar ferðir sem skemmtilegastar.
 

Endilega hafið samband og fáið nánari upplýsingar.



Velkomin um borð á Eldingu.



line

· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·

Copyright © randburg.com. All rights reserved.

Randburg Is Your Path to The Future of Information