Kaffi DUUS
við smábátahöfnina í Gróf
Duusgata 10
230 Keflavík

Sími 421 7080
Fax 421 2081

E-mail

english.gif (1775 bytes)
English

germany.gif (295 bytes)
German

Duus, veitingahús í hjarta Keflavíkur

Í hjarta Keflavíkur er Kaffi DUUS, staðsett við gömlu smábátahöfnina í Gróf með frábært útsýni yfir haf og fjöll.

Kaffi DUUS er einstaklega notalegur staður sem er allt í senn, kaffihús, veitingastaður og krá og þegar veðurguðirnir leyfa nýtur þú veitinga úti á verönd og andar að þér fersku sjávarloftinu.

Þú slakar vel á hjá okkur í hlýlegur og fallegu umhverfi við þægilega tónlist og nýtur alúðlegrar þjónustu hvort em það er eftir gönguferð upp á Bergið, flugferðina eða vinnudaginn.

Á ferð um Reykjanes er ávallt vinsælt að staldra við og fá sér ljúffengar vöfflur og heitt súkkulaði með rjóma. Þær fást ekki betri en hjá okkur.

Einkasamkvæmi í fallegu umhverfi
Kaffi DUUS tekur að sér að sjá um samkvæmi, svo sem afmæli, árshátíðir, kokteilveislur og aðra mannfagnaði. Staðurinn tekur 120 manns í sæti og þegar veður leyfir nýtist stór veröndin og garðurinn. Allt eftir óskum hvers og eins.

Hvalaskoðun, stangveiði & óvissuferðir
Kaffi DUUS skipuleggur skoðunarferðir, t.d. hvalaskoðun, stangveiði, skemmti- og óvissuferðir, sem frábært er að enda með grillveislu á DUUS þar sem maturinn er eldaður á útikolagrilli.

Klettastökk af Keflavíkurbergi
Bjóðum upp á klettastökk af Keflavíkurbergi . Fyrir þá sem þora, "Sæþotur" sem klikka aldrei. Erum með góð tilboð fyrir alla þá sem hafa gaman af skemmtilegum ferðum.

Kaffi Duus og Duusferðir eru með frábær pakka tilboð í mat & ferð Hvalaskoðun, sjóstöng, fuglaskoðun, óvissu, skemmti og útsýnisferðir.

Sjá nánar á http://www.duus.is/




· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·

Copyright © randburg.is - All rights reserved.

Randburg Is Your Path to The Future of Information