Randburg.is -> Iceland -> Tourism -> Accommodation

Brekkukot
- Ferðaþjónusta

Sólheimar Grímsnesi
IS-801 Selfoss
Iceland
Sími: 480-4483
Gsm:
898-4483
Fax: 480-4402

Tölvupóstur
Heimasíða Brekkukot

English
English

Brekkukot - Travel Services. Sólheimar Grímsnesi


Gistiheimili - Heilsuheimili
Gisti- og heilsuheimilið Brekkukot
er opið árið um kring. Í boði er gisting í tveimur húsum Brekkukoti og Veghúsum samtals 33 rúm. Allir gestir hafa aðgang að útisundlaug og heitum potti. Í Brekkukoti eru 3 tveggja manna og 7 eins manns herbergi ásamt íbúð með 4 rúmum baðherbergi og eldhúskrók. Rúmgóð eldunaraðstaða auk vistlegrar sjónvarpsstofu og sólstofu, en snyrtingar eru sameiginlegar.

Veghús - Góð eldunaraðstaða og falleg rúmgóð stofa Veghúsum eru 6 tveggja manna herbergi með sérsnyrtingu og 2 íbúðir. Góð eldunaraðstaða og falleg rúmgóð stofa með stórum sólpalli og fögru útsýni. Gestir geta sjálfir séð um matseld að hluta eða öllu leyti en í boði er morgunverður , hádegisverður, kaffi og kvöldverður fyrir hópa ef óskað er.

Brekkukot býður upp á glæsilega aðstöðu til funda, námskeiða og ráðstefnuhalds í Sesseljuhúsi og mismunandi byggingum á Sólheimum. Einnig er mjög góð aðstaða til margskonar veisluhalda svo sem stórafmæla, brúðkaupa og ýmiskonar samkvæma.

Kaffihúsið Græna kannan
Græna kannan er nýtt kaffihús þar sem allar veitingar eru framleiddar úr lífrænt ræktuðu hráefni.

Græn ferðaþjónusta
Brekkukot hefur markað sér stefnu í anda Grænnar ferðaþjónustu og er fyrsta gistihúsið á Íslandi sem fékk opinbera viðurkenningu þar um. Sólheimar hafa í áratugi verið í fararbroddi í lífrænni ræktun og umhverfismálum og eru síðan 1997 meðlimur í samtökunum Global Eco-village Network, en þar eru samtök vistvænna samfélaga á jörðinni.

Græn ferðaþjónusta
Brekkukot hefur markað sér stefnu í anda Grænnar ferðaþjónustu og er fyrsta gistihúsið á Íslandi sem fékk opinbera viðurkenningu þar um. Sólheimar hafa í áratugi verið í fararbroddi í lífrænni ræktun og umhverfismálum og eru síðan 1997 meðlimur í samtökunum Global Eco-village Network, en þar eru samtök vistvænna samfélaga á jörðinni. Eftirfarandi er lagt til grundvallar í rekstri Brekkukots:

. Að stuðla að umhverfisvernd samhliða aukinni ánægju af útivist
. Að kynna gildi þess að neyta lífrænt ræktaðrar fæðu
. Að vinna að kynningu á Sólheimum og þeirri hugmyndafræði sem byggt er á
. Að stuðla að efnahags- og atvinnuuppbyggingu á Sólheimum
. Að taka mið af kostnaði en hafa gæði ávallt í fyrirrúmi.

Bókunarsímar Brekkukots eru: 898-4483 og 4804483.

Græn ferðaþjónusta

Veghús - Góð eldunaraðstaða og falleg rúmgóð stofa

Modern guesthouse in south Iceland

Geothermally heated greenhouse

guesthouse in south Iceland

accommodation in south Iceland
 

Location map, Brekkukot - Sólheimar south Iceland


· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg · Sign Up! ·

Copyright © randburg.is - All rights reserved.

Randburg Is Your Path to The Future of Information