| Gistiheimili Áslaugar er
elsta starfandi gistiheimilið á Ísafirði, það hefur verið starfrækt
frá árinu 1989 af Áslaugu J. Jensdóttur. Gistiheimilið er að
Austurvegi 7, Ísafirði, í íbúðarhúsnæðinu sem Marsellíus
Bernharðsson skipasmíðameistari og eiginkona hans Alberta
Albertsdóttir, reistu árið 1942 yfir fjölskylduna sína.
Á gistiheimilinu eru fimm herbergi með handlaugum, eldhúsi og góðri hreinlætisaðstöðu. Boðið er upp á gistingu í uppbúnum rúmum eða svefnpokaplássi og morgunverður er framreiddur samkvæmt óskum. Gistihúsið er í miðbænum við Sundhöll Ísafjarðar og blómagarðinn
Austurvöll. Þaðan er stutt í alla þjónustu eða í nokkurra mínútna
göngufæri. Næstu hús eig sér langa sögu, annað þeirra er Faktorshúsið í Hæstakaupstað, eða íbúðarhúsnæði verslunarstjórans við Hæstakaupstaðarverslun, Aðalstræti 42, reist árið 1788, en hitt er Sölubúðin í Hæstakaupstað, sem var reist árið 1873. Faktorshúsið hefur nú verið gert upp og hýsir kaffi- og veitingahús á tveimur hæðum, auk þess sem þar er gert ráð fyrir lítilli gesta íbúð. Húsið var reist af Björgvinjarmönnum, eftir afnám Einokunarverslunar á Íslandi. Árið 1993 festu núverandi eigendur, hjónin Áslaug Jensdóttir og Magnús Alfreðsson, húsasmíðameistari, kaup á húsinu, sem þá var í niðurníðslu. Hafist var handa við endurbætur árið 1998 og húsið opnað fyrir almenning í desember 2001. Fakatorshúsið hentar vel fyrir litla hópa, en rúmar u.þ.b. 80
manns í sæti. Starfsfólkið hlaut þjálfun í framreiðslu kaffidrykkja hjá Kaffitári í Reykjavík og þaðan kemur allt hráefnið. Þetta gamla og merka hús hefur nú náð fyrri reisn. Þar hafa margir búið og ýmsir lengi. Sumir íbúar voru þekktir einstaklingar frá fyrri tíð t.d. Sophus J. Nielsen, afi Erlings Blöndal Bentssonar og Jón Laxdal tónskáld, afi Ragnars Arnalds fyrrverandi Alþingismanns. Sophus og Jón Laxdal héldu í áratugi jólatrésskemmtanir fyrir börn á
Ísafirði, frá seinni hluta nítjándu aldar og fram tuttugustu öld.
Sjáumst á Ísafirði |
![]() ![]() ![]() ![]() |
![]()
· Agriculture
·
· Fisheries ·
·Recreation &Sports ·
Shopping ·Shipping
&Transport · Tourism·
· Home ·