|
|
|
Ármót Armot Rangarvollum Iceland Tel 354 487 5131 |
|
Að Ármótum á Rangárvöllum höfum við byggt upp eitt
glæsilegasta hrossaræktar- og ferðaþjónustubýli á Íslandi. Við erum tilbúin að
taka á móti uppáhalds kynbótahrossunum þínum, ala upp ungviðið þitt og sjá um að
koma hryssunum þínum undir stóðhesta. Á Ármótum bjóðum við einnig upp á
skotveiði, stangaveiði og sérstakar ævintýraferðir. Á staðnum er gistihús fyrir
14 manns, en hægt er að taka á móti allt að 200 manna hópum í grillveislur,
ráðstefnur og aðrar uppákomur í Sælukránni.
Á Ármótum er stunduð metnaðarfull hrossarækt. Aðeins tamdar úrvals hryssur eru notaðar til undaneldis og þær leiddar undir bestu fáanlegu stóðhesta. Þrír stóðhestar marka línuna í ræktuninni á Ármótum: Hrafn frá Holtsmúla, Ófeigur frá Flugumýri og Orri frá Þúfu, en dætur þessara hesta eru meðal undaneldishryssnanna og aðal stóðhestur búsins, Sær frá Bakkakoti er undan Orra og Sælu frá Gerðum, Ófeigsdóttur frá Flugumýri. Veitingahúsið samanstendur af Sælukránni og grillskála, sem eru viðbyggingar við stóra hesthúsið. Þessi aðstaða tekur um 200 manns í sæti og er til útleigu fyrir einkasamkvæmi (með eða án starfsfólks), afmæli, starfsmannapartý, þorrablót, fyrirlestra, fundi ofl. Gistihúsið á Ármótum er á tveimur hæðum. Á efri hæðinni eru þrjú tveggja manna herbergi, eitt baðherbergi með sturtu og annað með sturtu og nuddbaðkari. Á hæðinni er einnig sérlega falleg koníaksstofa og borðstofa og tvennar svalir með fallegu útsýni til fjalla í norður og Vestmannaeyja í suður. Á neðri hæðinni eru tvö tveggja manna herbergi, annað stórt fjölskyldu herbergi fyrir allt að fimm manns, baðherbergi með sturtu og gestasnyrting. Einnig fullkomið eldhús ásamt borðstofu fyrir tólf manns. Gistiheimilið er til leigu fyrir hópa,
fjölskyldur og einstaklinga.
|
|
· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries
· News & Media · Public Authorities ·
·
Recreation &
Sports · Shopping ·
Shipping &
Transport · Tourism
·
· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·
Copyright © randburg.is. All rights reserved.